Borja Lopez, leikmaður Dalvíkur/Reynis, sýndi mikinn heiðarleika í leik liðsins gegn Hetti/Huginn í Lengjubikarnum um síðustu helgi.
Höttur/Huginn vann leikinn 1-0 en í viðbótartíma virtist Borja hafa jafnað fyrir gestina í Dalvík/Reyni.
Borja kom boltanum í netið eftir aukaspyrnu en heimamenn mótmæltu strax harðlega og vildu sjá dæmda hendi.
Höttur/Huginn var að fara að hefja leik aftur á miðju þegar Borja viðurkenndi að boltinn hefði farið í höndina á honum á leið í markið.
Davíð Brynjar Sigurjónsson, dómari leiksins, dæmdi þá markið af og Höttur/Huginn fékk aukaspyrnu.
Austurfrétt fjallar nánar um málið en þar má sjá myndband af atvikinu.
Smelltu hér til að sjá myndbandið hjá Austurfrétt
Athugasemdir