Þýskir fjölmiðlar segja erfitt að rýna í líklegt byrjunarlið fyrir leikinn gegn Íslandi í undankeppni HM í kvöld. Toni Kroos, Niklas Sule og Robin Gosens hafa allir dregið sig úr hópnum undanfarna daga.
Joachim Löw gæti spilað 3-4-3 eða 4-3-3 og nokkur spurningamerki eru í liðinu.
Joachim Löw gæti spilað 3-4-3 eða 4-3-3 og nokkur spurningamerki eru í liðinu.
Nokkuð ljóst þykir þó að Serge Gnabry, Leroy Sane og Timo Werner verði í fremstu stöðunum. Meiri óvissa ríkir með vörnina og vængbakverðina ef Löw spilar 3-4-3.
Hér að neðan má sjá líklegt byrjunarlið en leikmenn eins og Marcel Halstenberg, Jonathan Tah og Philipp Max koma einnig til greina aftarlega á vellinum.
Athugasemdir