Jóhann Berg Guðmundsson var allan tímann á varamannabekknum í kvöld þegar Ísland tapaði fyrir Þýskalandi í fyrsta leik í undankeppni HM 2022.
Jóhann Berg hefur verið að glíma við meiðsli og það var ekki tekin áhætta með hann.
Jóhann Berg hefur verið að glíma við meiðsli og það var ekki tekin áhætta með hann.
Fréttamaður Fótbolta.net spurði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfara, út í stöðuna á Jóhanni eftir leikinn í kvöld og hvort hann yrði tilbúinn fyrir leikinn við Armeníu á sunnudaginn.
„Jói æfði vel í gær og tók líka góða æfingu í morgun. Það lítur mjög vel út með Jóa fyrir Armeníuleikinn. Eins og við vitum þá þurfum við að taka það degi til dags. Ég að sjálfsögðu vona að hann verði klár til að byrja leikinn við Armeníu," sagði Arnar.
Sá ekki út um annað augað
Rúnar Már Sigurjónsson, miðjumaður, fór meiddur af velli í leiknum í kvöld eftir að hafa fengið högg á auga.
„Rúnar fékk högg á auga að ég held. Hann sá ekki út um annað augað. Ég hef ekki meiri upplýsingar um það. Ég vona að það sé bara eitthvað tímabundið og það verði mikið betra á morgun," sagði Arnar.
Athugasemdir