Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. mars 2021 08:00
Aksentije Milisic
Mitrovic jafnaði markametið - Frábær afgreiðsla
Mynd: Getty Images
Aleksandar Mitrovic var á skotskónum fyrir Serba í gær sem unnu góðan 3-2 sigur á Írlandi í Undankeppni HM 2022.

Írarnir komust yfir en Serbar svöruðu með þremur mörkum. Dusan Tadic lagði upp öll mörk heimamanna.

Mitrovic, leikmaður Fulham, gerði tvennu í leiknum og hann er nú búinn að jafna markamet Serbíu (og gömlu Yugoslavíu) aðeins 26 ára gamall. Þetta met hefur ekki verið slegið í 65 ár.

Fyrra mark hans í gær var einkar glæsilegt. Hann fékk sendingu frá Tadic og skaut boltanum snyrtilega yfir markvörð gestanna af löngu færi. Þessa snyrtilegu afgreiðslu má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner