Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 25. mars 2021 15:15
Magnús Már Einarsson
Þjálfari Rússa: Sveinn Aron sterkastur hjá Íslandi
Icelandair
Sveinn Aron Guðjohnsen
Sveinn Aron Guðjohnsen
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikhail Galaktionov, þjálfari U21 landsliðs Rússa, segir óttast Svein Aron Guðjohnsen framherja Íslands mest fyrir leik liðanna klukkan 17:00 í dag.

„Hann er aðalstyrkleikinn þeirra. Hann er líkamlega sterkur framherji," sagði Galaktionov.

„Hann er góður með bakið í markið, góður skallamaður og hann er mjög öflugur. Varnarlínan og miðjumennirnir okkar einbeita sér að honum."

Galaktionov segir að Rússar séu búnir að skoða íslenska liðið vel.

„Við vitum styrkleika þeirra og veikleika. Við einbeitum okkur að þeim."
Athugasemdir
banner
banner
banner