Bryndís Arna Níelsdóttir hefur skrifað undir samning við Fylki sem gildir út keppnistímabilið 2022.
Bryndís, sem er fædd árið 2003, er uppalin í Fylki og er mjög efnilegur sóknarmaður.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún þegar spilað 32 leiki í deild og bikar með meistaraflokki félagsins og skorað í þeim 15 mörk. Bryndís spilaði sinn fyrsta leik með meistaraflokki árið 2017.
Bryndís hefur spilað með yngri landsliðum Íslands alls 14 leiki og skoraði í þeim leikjum sex mörk.
Á síðustu leiktíð hafnaði Fylkir í sjötta sæti Pepsi Max-deildar kvenna.
Athugasemdir