Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. apríl 2020 16:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvíta-Rússland: Willum lék allan leikinn í útisigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Af einhverjum ástæðum er úrvalsdeildin í Hvíta-Rússlandi enn í gangi á meðan aðrar deildir í Evrópu, og víða um heim, eru í hléi vegna kórónuveirufaraldursins.

Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði BATE Borisov þegar liðið vann útisigur á Gorodeya.

Willum spilaði allan leikinn í 2-0 sigri, en bæði mörk BATE komu á síðustu 20 mínútum leiksins.

BATE hoppaði upp í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri og er liðið með tíu stig eins og hin liðin í efstu fjórum sætum deildarinnar. Willum, sem er 21 árs gamall, hefur byrjað fjóra af fyrstu sex deildarleikjum BATE á þessari leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner