Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. apríl 2021 05:55
Aksentije Milisic
Ísland í dag - ÍBV mætir til leiks í Mjólkurbikarnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag fara fram sjö leikir í Mjólkurbikar karla en hann hófst í vikunni.

Klukkan 12 er fyrsti leikur dagsins en þá mætast Hamar og Vestri.

Lengjudeildarlið ÍBV fær þá Reyni Sandgerði í heimsókn í Vestmannaeyjum klukkan 14 en þá fara fram þrír leikir. ÍBV komst einmitt í undanúrslit bikarsins í fyrra áður en mótið var blásið af.

Klukkan 17 eru einnig þrír leikir. KM og Haukar mætast og Ægir og Uppsveitir svo eitthvað sé nefnt. Hér fyrir neðan má sjá alla leiki dagsins. Gleðilegt fótboltasumar!

Mjólkurbikar karla
12:00 Hamar-Vestri (JÁVERK-völlurinn)
14:00 ÍBV-Reynir S. (Hásteinsvöllur)
14:00 KFB-Stokkseyri (Bessastaðavöllur)
14:00 Snæfell-Skallagrímur (Ólafsvíkurvöllur)
17:00 Ægir-Uppsveitir (JÁVERK-völlurinn)
17:00 Vatnaliljur-ÍH (Fagrilundur - gervigras)
17:00 KM-Haukar (KR-völlur)

Athugasemdir
banner
banner
banner