banner
   sun 25. apríl 2021 15:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Samúel Kári skoraði - Willum á bekknum
Samúel á landsliðsæfingu síðasta haust
Samúel á landsliðsæfingu síðasta haust
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samúel Kári Friðjónsson skoraði þriðja mark Viking Stavanger í 3-3 jafntefli gegn Start í æfingaleik í dag.

Samúel var í byrjunarliði Viking og fór af velli á 84. mínútu. Markið skoraði hann á 56. mínútu og kom sínum mönnum í 3-2. Það kom eftir undirbúning frá Yann-Erik de Lanlay.

Guðmundur Andri Tryggvason byrjaði á bekknum hjá Start en ekki fundust upplýsingar um hvort eða hvenær hann kom inn á. Jóhannes Harðarson er þjálfari Start.

Í hvít-rússnesku deildinni vann BATE 1-4 útisigur á Isloch.

Willum Þór Willumsson var ónotaður varamaður í sigrinum en hann lék allan leikinn í bikarkeppninni í vikunni.

BATE er með fjórtán stig eftir sex umferðir, í öðru sæti deildarinnar. Næsti leikur er gegn Smorgon um næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner