Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. maí 2021 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Milan að fá markvörð meistara Lille - Donnarumma á förum?
Mike Maignan.
Mike Maignan.
Mynd: EPA
AC Milan er að ganga frá kaupum á franska markverðinum Mike Maignan.

Maignan var frábær fyrir Lille sem varð franskur meistari á dögunum. Hann er núna á leið til Mílanó.

Samkvæmt Sky Italia þá er Milan að borga fyrir hann 15 milljónir evra.

Maignan á 12 mánuði eftir af samningi sínum og Lille er því að selja hann núna. Hann verður ekki eini leikmaðurinn sem yfirgefur Lille í sumar og er þjálfarinn, Christophe Galtier, líka á förum. Hann er að taka við Nice.

Þessi félagaskipti þykja benda til þess að Gianluigi Donnarumma sé á förum frá Milan. Hann verður samningslaus eftir rúman mánuð og samningaviðræður hafa ekki gengið upp. Hann hefur verið orðaður við Juventus.
Athugasemdir
banner
banner