Ensku úrvalsdeildinni lauk um síðustu helgi og Football365 hefur sett saman topp tíu lista yfir bestu varnarmenn tímabilsins.
10) Nat Phillips - Ein af sögum tímabilsins. Stóð sig afskaplega vel í erfiðum meiðslavandræðum varnarmanna Liverpool.
9) Antonio Rudiger - Virtist á útleið frá Chelsea en sýndi það að Frank Lampard veðjaði á ranga hesta. Frábær seinni hlutann.
8) Aaron Cresswell - Traustur varnarlega og með frábærar spyrnur og sköpunarmátt. Átta stoðsendingar fyrir West Ham.
7) Ezri Konsa - Það voru miklar framfarir á varnarleik Aston Villa og Konsa átti afskaplega gott tímabil.
6) Harry Maguire - Ef Manchester United fær betri mann við hlið hans þá mun United verða mun líklegra til að keppa við Manchester City.
4) Wesley Fofana - Þessi tvítugi Frakki var fljótur að aðlagast enska boltanum og átti geggjað tímabil með Leicester.
3) John Stones - Hefur nýtt tækifærin hjá Manchester City á þessu tímabili og verið gríðarlega öflugur.
2) Luke Shaw - Getur verið mjög stoltur af þessu tímabili sínu með Manchester United. Gerði varla mistök varnarlega og er búinn að bæta sig sóknarlega.
Athugasemdir