Byrjunarliðin eru klár fyrir leik Írans og Portúgal í lokaleik liðanna í B-riðli.
Bæði lið eiga möguleika á að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum en það gera þau með sigri í dag. Það er enginn Bernardo Silva í byrjunarliði Portúgala og þá er Joao Moutinho veikur. Í stað þeirra koma félagarnir Adrien Silva og Andre Silva inn í byrjunarliðið.
Íran hefur staðið sig feikilega vel á heimsmeistaramótinu og það verður gaman að sjá hvort að liðinu takist að halda í við Portúgal í dag. Byrjunarliðin má sjá hér að neðan.
Portúgal
Rui Patrício; Cédric Soares, Pepe, José Fonte, Guerreiro, Ricardo Quaresma, Adrien Silva, William Carvalho, João Mário, André Silva, Cristiano Ronaldo
Íran
Beiranvand; Rezaeian, Pouraliganji, Hosseini, Haji Safi, Ezatolahi, Jahanbakhsh, Ebrahimi, Amiri, Taremi, Azmoun
Athugasemdir