David de Gea er ekki búinn að eiga neitt frábært Heimsmeistaramót í markinu hjá Spánverjum.
De Gea, sem er að mörgum talinn besti markvörður heims, var að verja sitt fyrsta skot á mótinu í þriðja leiknum. Áður en hann varði sitt fyrsta skot var hann búinn að fá á sig fjögur mörk.
De Gea, sem er að mörgum talinn besti markvörður heims, var að verja sitt fyrsta skot á mótinu í þriðja leiknum. Áður en hann varði sitt fyrsta skot var hann búinn að fá á sig fjögur mörk.
Spánn er þessa stundina að spila við Marokkó í lokaleik sínum í B-riðli. Þegar þessi frétt er skrifuð er staðan 1-1. Marokkó komst yfir en Isco jafnaði fyrir Spán.
Eins og staðan er núna er Spánn að vinna sinn riðil með fimm stig. Í hinum leik riðilsins eru Íran og Portúgal að gera markalaust jafntefli.
David de Gea saved the fifth shot on target he faced at the 2018 World Cup after conceding from each of the first four.
— Squawka Football (@Squawka) June 25, 2018
First time for everything. 😉 https://t.co/t7jaNNZQqW
Athugasemdir