Helgi Mikael Jónasson dæmir leik FC Prishtina frá Kosovó og St Joseph´s FC frá Gíbraltar.
Leikurinn fer fram 27. júní í Pristina, Kosovó.
Um er að ræða leik í forkeppni Evrópudeildarinnar en þetta er fyrri viðureign liðanna.
Honum til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Bryngeir Valdimarsson. Fjórði dómari verður Þorvaldur Árnason.
Sigurliðið í einvíginu mun mæta Rangers frá Skotlandi í næstu umferð, Steven Gerrard og lærisveinum.
Athugasemdir