Í kvöld klárast 32-liða úrslitin í Mjólkurbikar karla með tveimur fótboltaleikjum.
Það verður Víkingaslagur þegar Ólsarar taka á móti nöfnum sínum úr Reykjavík. Á sama tíma fer fram leikur Breiðabliks og Keflavíkur og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.
Það verður svo dregið í 16-liða úrslitin á Stöð 2 Sport á föstudagskvöld.
Einnig verður leikið í þremur riðlum í 4. deild karla í kvöld, en alla leiki dagsins má sjá hér að neðan.
fimmtudagur 25. júní
Mjólkurbikar karla
19:15 Víkingur Ó.-Víkingur R. (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 Breiðablik-Keflavík (Kópavogsvöllur - Stöð 2 Sport 3)
4. deild karla - A-riðill
20:00 ÍH-GG (Skessan)
20:00 Uppsveitir-Vatnaliljur (Flúðavöllur)
20:00 Ýmir-Léttir (Versalavöllur)
4. deild karla - B-riðill
19:00 Stokkseyri-Kormákur/Hvöt (Stokkseyrarvöllur)
20:00 Álafoss-Björninn (Tungubakkavöllur)
4. deild karla - C-riðill
20:00 KM-Skallagrímur (KR-völlur)
Athugasemdir