Liverpool getur orðið Englandsmeistari í kvöld. Titillinn verður tryggður ef Manchester City nær ekki að vinna Chelsea.
Biðlað hefur verið til stuðningsmanna Liverpool á Englandi að fagna titlinum heima ef hann kemur í hús í kvöld.
Þetta verður fyrsti Englandsmeistaratitill Liverpool í 30 ár.
Biðlað hefur verið til stuðningsmanna Liverpool á Englandi að fagna titlinum heima ef hann kemur í hús í kvöld.
Þetta verður fyrsti Englandsmeistaratitill Liverpool í 30 ár.
Borgarstjórinn í Liverpool segir að til að taka enga áhættu með heilsu fólks eigi stuðningsmenn að gleðjast heima hjá sér. Þegar hægt verði að tryggja öryggi fólks verði svo hátíðarhöld í borginni.
Ef Manchester City tekst ekki að vinna Chelsea á Stamford Bridge í kvöld þá verður Liverpool staðfestur Englandsmeistari. Ef City vinnur þá verður leikur á Etihad þann 2. júlí þar sem City þarf að taka öll stigin til að fresta fögnuði Liverpool enn lengur.
Athugasemdir