Sólmundur Hólm, oftast kallaður Sóli, er formaður hins svokallað Liverpool-samfélags á Íslandi.
Sóli tók að sér þetta hlutverk fyrir einhverju síðan og hefur ítrekað stappað stálinu í 'þegna' samfélagsins.
Sóli tók að sér þetta hlutverk fyrir einhverju síðan og hefur ítrekað stappað stálinu í 'þegna' samfélagsins.
Í kjölfar þess að Liverpool varð Englandsmeistari í kvöld setti Sóli inn færslu á Twitter.
„Kæru þegnar! Ég get ekki sagt neitt sem getur túlkað þær tilfinningar sem brjótast innra með okkur öllum á þessum tímapunkti. Takk fyrir að hafa trú á því að ég gæti leitt okkur á þennan stað sem við erum komin á núna. Við erum best sameinuð. LUV, Formaðurinn!" skrifaði Sóli.
Kæru þegnar!
— Sóli Hólm (@SoliHolm) June 25, 2020
Ég get ekki sagt neitt sem getur túlkað þær tilfinningar sem brjótast innra með okkur öllum á þessum tímapunkti. Takk fyrir að hafa trú á því að ég gæti leitt okkur á þennan stað sem við erum komin á núna. Við erum best sameinuð.
LUV, Formaðurinn! pic.twitter.com/UBh37BcNsv
Athugasemdir