Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 25. júní 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Zabaleta, Ngakia og Sanchez kveðja West Ham
Pablo Zabaleta.
Pablo Zabaleta.
Mynd: Getty Images
Pablo Zabaleta, Jeremy Ngakia og Carlos Sanchez fara allir frá West Ham þegar samningar þeirra renna út í næstu viku.

Argentínski bakvörðurinn Zabaleta hefur leikið 80 leiki með West Ham síðan hann kom frá Manchester City árið 2017 en hann er á meiðslalistanum og klárar því ekki núverandi tímabil með liðinu.

Ngakia er uppalinn hjá West Ham og hefur byrjað fimm leiki á þessu ári. Hann hefur hins vegar hafnað því að gera nýjan samning við félagið.

Sanchez er kolumbískur landsliðsmaður sem spilaði átján leiki á tveimur árum hjá West Ham en síðasti leikur hans var gegn WBA í janúar.

West Ham er í harðri fallbaráttu en næsti leikur liðsins er gegn Chelsea á miðvikudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner