lau 25. júní 2022 09:20
Fótbolti.net
Besta uppgjörið og allt það helsta á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fara yfir allt það helsta í íslenska fótboltanum á X977 í dag.

Þátturinn er á dagskrá á laugardögum milli 12 og 14.

Í þættinum þessa vikuna verður sérstakt Bestu deildar uppgjör þar sem valið er úrvalslið deildarinnar hingað til, besti leikmaðurinn og besti þjálfarinn. Hvaða leikmenn hafa verið mestu vonbrigðin?

Fjallað verður um Víking í Meistaradeildinni og Haraldur Haraldsson framkvæmdastjóri félagsins fer yfir möguleika Íslands á að endurheimta fjórða Evrópusætið.

Einnig er fjallað um Lengjudeildina og besti leikmaður deildarinnar hingað til valinn. Rafn Markús Vilbergsson verður á línunni.

Þá er rætt um Breiðablik - KR, spáð í spilin fyrir Mjólkurbikarinn og rýnt í helstu fréttir, þar á meðal skipti Frederik Schram í Val.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner