Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 25. júní 2022 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Leverkusen að kaupa leikmann frá Man City
Sam Edozie
Sam Edozie
Mynd: Getty Images
Enski táningurinn Sam Edozie er að ganga í raðir Bayer Leverkusen frá Manchester City. Ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano segir frá.

Edozie er 19 ára gamall er uppalinn í Millwall en kom til Man City árið 2019.

Hann á einn leik að baki fyrir aðallið City en hann er nú á förum frá félaginu.

Þýska félagið Bayer Leverkusen hefur verið í viðræðum við Man City síðustu daga og hafa félögin komið sér saman um kaupverð.

Hann mun skrifa undir tveggja ára samning við Leverkusen og verður það tilkynnt á næstu sólarhringum.

Edozie á þrjá leiki að baki fyrir yngri landslið Englands en þessi efnilegi leikmaður getur spilað á báðum vængjunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner