Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. júní 2022 12:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Segir að Raphinha sé fullkominn fyrir Liverpool
Mynd: Getty Images

Raphinha leikmaður Leeds United og brasilíska landsliðsins er einn eftirsóttasti bitinn á markaðnum í sumar en hann er orðaður við öll stærstu lið Englands.


Sadio Mane yfirgaf Liverpool og gekk til liðs við Bayern Munchen í Þýskalandi á dögunum. Liverpool festi kaup á Darwin Nunez frá Benfica í staðin fyrir Mane.

Jose Enrique fyrrum leikmaður Liverpool vill að Liverpool kaupi Raphinha einnig en hann færi þá væntanlega í samkeppni við Mohamed Salah.

„Hann væri fullkomin kaup fyrir tímabilið og við þurfum ekki fleiri ef við fáum hann," skrifaði Enrique á Twitter síðu sína.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner