Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 25. júlí 2020 19:02
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Albert, Ari og Aron í undirbúningi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði AZ Alkmaar sem mætti Genk í æfingaleik í dag.

Bundið var enda á tímabilin í Hollandi, Frakklandi og Belgíu í miðjum Covid faraldri í vor og eru lið þar byrjuð að undirbúa sig fyrir komandi leiktíð.

AZ tapaði fyrir Genk þrátt fyrir mikla yfirburði. Cyriel Dessers gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

AZ Alkmaar 0 - 1 Genk
0-1 Cyriel Dessers ('19, víti)

Ari Freyr Skúlason var þá í byrjunarliðinu er Oostende tapaði gegn St. Gilloise.

Aron Sigurðarson kom inn af bekknum hjá St. Gilloise í hálfleik þegar staðan var 1-1. Gestirnir náðu að gera sigurmark á 89. mínútu.

Oostende endaði í næstsíðasta sæti efstu deildar á nýliðinni leiktíð. St. Gilloise endaði í fjórða sæti 2. deildar.

Oostende 1 - 2 St. Gilloise
1-0 A. Hjulsager ('25)
1-1 M. Fixelles ('40)
1-2 C. Nielsen ('89)
Athugasemdir
banner
banner
banner