Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. júlí 2022 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
West Ham nær samkomulagi við Scamacca
Mynd: EPA
West Ham hefur náð samkomulagi við Gianluca Scamacca, framherja Sassuolo, um kaup og kjör. Búist er við því að hann fljúgi til Englands í kvöld og fari svo í læknisskoðun á morgun. Það er Sky Sports sem greinir frá.

West Ham náði samkomulagi við Sassuolo um kaupverð í gær og mun West Ham greiða allt í allt 35,5 milljónir punda fyrir hann, 30,5 milljónir strax og svo fimm milljónir punda til viðbótar síðar meir.

Scamacca skrifar undir fimm ára samning við Hamrana með möguleika um eitt ár til viðbótar.

Hann er ítalskur landsliðsmaður sem skoraði sextán mörk í 38 leikjum í Serie A á síðasta tímabili. Hann er uppalinn hjá Lazio, Roma og PSV.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner