Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. ágúst 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Leipzig og Frankfurt mætast
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Það eru tveir leikir á dagskrá í efstu deild þýska boltans í dag. Fyrri leikur dagsins er spennandi þar sem RB Leipzig fær Eintracht Frankfurt í heimsókn.

Bæði lið stefna á Meistaradeildarsæti og hafa gert góða hluti undanfarin ár.

RB Leipzig er við það að festa sig í sessi sem eitt af þremur bestu liðum Þýskalands á meðan Frankfurt komst alla leið í undanúrslit Evrópudeildarinnar í vor.

Bæði lið byrjuðu tímabilið á sigri þar sem Leipzig rúllaði yfir nýliða Union Berlin á meðan Frankfurt lagði Hoffenheim að velli.

Frankfurt er að venjast lífinu án Luka Jovic, sem fór til Real Madrid, og Sebastien Haller, sem fór til West Ham.

Í seinni leik dagsins á Hertha Berlin heimaleik gegn Wolfsburg. Hertha náði góðu jafntefli á útivelli gegn FC Bayern í fyrstu umferð á meðan Wolfsburg sigraði nýliðana frá Köln.

Í B-deildinni eiga Rúrik Gíslason og félagar í Sandhausen leik á útivelli gegn Heidenheim.

Bæði lið eru með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

Leikir dagsins:
13:30 RB Leipzig - Eintracht Frankfurt
16:00 Hertha Berlin - Wolfsburg

B-deild:
11:30 Heidenheim - Sandhausen
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 30 11 6 13 53 60 -7 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
15 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
16 Bochum 30 5 12 13 34 60 -26 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner