Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 25. ágúst 2021 18:05
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Arsenal gegn WBA: Ramsdale í markinu
Aaron Ramsdale er í liði Arsenal
Aaron Ramsdale er í liði Arsenal
Mynd: Arsenal
Þrír leikir eru í enska deildabikarnum í kvöld. Arsenal mætir WBA á Hawthornes-leikvanginum en Martin Ödegaard og Pierre-Emerick Aubameyang eru í byrjunarliðinu.

Aubameyang hefur verið frá vegna veikinda á meðan Ödegaard var keyptur frá Real Madrid á dögunum eftir að hafa verið á láni hjá Arsenal á síðustu leiktíð.

Aaron Ramsdale er í rammanum hjá Arsenal og spilar sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Jóhann Berg Guðmundsson fær hvíld í kvöld en hann er ekki í hópnum hjá Burnley sem mætir Newastle United.

Byrjunarlið Arsenal: Ramsdale, Tavares, Chambers, Holding, Kolasinac, Elneny, Xhaka, Odegaard, Pepe, Saka, Aubameyang

Varamenn: Leno, Mari, Maitland-Niles, Sambi, Smith Rowe, Martinelli, Lacazette
Athugasemdir
banner
banner
banner