Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. ágúst 2021 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Arsenal heimsækir West Brom
Mynd: Getty Images
Þrír síðustu leikir 64-liða úrslita enska deildabikarsins fara fram í kvöld og mæta fjögur úrvalsdeildarfélög til leiks.

Það verður einn leikur sýndur beint á Stöð 2 Sport 2, þegar West Bromwich Albion tekur á móti Arsenal.

West Brom féll úr úrvalsdeildinni í vor og er með tíu stig eftir fjórar umferðir í Championship á meðan Arsenal hefur farið herfilega af stað á nýju úrvalsdeildartímabili.

Newcastle United mætir þá Burnley í úrvalsdeildarslag þar sem Jóhann Berg Guðmundsson gæti fengið að spreyta sig.

Southampton á svo útileik við bikarliðið ógurlega Newport County. D-deildarliðið hefur reynst stærri andstæðingum ansi erfitt viðureignar og verður áhugavert að sjá hvernig lærisveinar Ralph Hasenhüttl höndla verkefnið.

Leikir kvöldsins:
18:45 Newcastle - Burnley
18:45 Newport - Southampton
19:00 West Brom - Arsenal (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner
banner