Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 25. ágúst 2021 17:55
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho um hópinn: Pochettino eini þjálfarinn sem er sáttur
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, þjálfari Roma á Ítalíu, gæti styrkt hópinn frekar áður en glugginn lokar. Það er þó aðeins einn þjálfari sem gæti mögulega verið sáttur með hópinn sinn.

Roma hefur fengið sex leikmenn til liðsins í sumar, þar á meðal Rui Patricio og Tammy Abraham, en Mourinho gæti bætt við nokkrum leikmönnum áður en glugginn lokar í næstu viku.

Hann segir að það sé mögulega einn þjálfari í Evrópuboltanum sem er sáttur við hópinn sinn og var svarið nokkuð augljóst.

„Veistu um einhvern þjálfara sem er sáttur með hópinn sinn? Það er mögulega einn þjálfari sem er sáttur og það er Mauricio Pochettino," sagði Mourinho og hló.

Pochettino er með svakalegan hóp í höndunum en Paris Saint-Germain fékk Achraf Hakimi, Gianluigi Donarruma, Gini Wijnaldum, Sergio Ramos og Lionel Messi í sumar. Þá er orðrómur um að Cristiano Ronaldo gæti komið í stað Kylian Mbappe ef Real Madrid nær samkomulagi við franska félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner