Framtíð Kylian Mbappe virðist vera í ákveðinni óvissu. Þessi 22 ára sóknarmaður PSG verður samningslaus næsta sumar og eru háværar sögusagnir um að hann vilji fara til Real Madrid, annað hvort núna fyrir gluggalok eða á frjáslri sölu næsta sumar.
Real Madrid bauð 137 milljónir punda í Frakkann en PSG neitaði tilboðinu.
Real Madrid bauð 137 milljónir punda í Frakkann en PSG neitaði tilboðinu.
Samkvæmt heimildum L'Equipe í Frakklandi þá mun PSG samþykkja tilboð frá Real ef félagið hækkar tilboðið um 34 milljónir punda, upp í 171 milljónir.
Yfirmenn hjá PSG eru sagðir steinhissa á að Real hafi komið með upprunalega tilboðið og eru núna ekki tilbúnir að útiloka það að Mbappe verði seldur.
Félagaskiptaglugginn á Spáni lokar um mánaðamótin.
Athugasemdir