Íslenska kvennalandsliðið skipað stúlkum 17 ára og yngri mætir því enska í úrslitaleik um toppsæti fyrsta undanriðilsins fyrir Evrópumótið á næsta ári.
Íslenska landsliðið hefur staðið sig afar vel hingað til og er með sex stig eftir tvo fyrstu leikina og markatöluna 7:0.
Enska liðið hefur þó staðið sig betur og er með markatöluna 13:0 eftir 7-0 sigur á Aserbaídsjan, sem íslenska liðið vann aðeins 1-0.
Tvö lið fara upp úr riðlinum og á næsta stig undankeppninnar og getur verið mjög mikilvægt að enda á toppi riðilsins til að fá þægilegri andstæðinga í næstu leikjum.
KSÍ er með leikinn í beinni útsendingu og er hægt að fylgjast með gangi mála með að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
🇮🇸 U17 ára lið kvenna mætir klukkan 12:00 Englandi í síðasta leik liðsins í undankeppni EM 2019.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 25, 2018
👇 Hægt verður að horfa á leikinn í beinni útsendingu í fréttinni.https://t.co/kPoyHuLhMr
Athugasemdir