Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að fólk sé að gleyma Chelsea í titilbaráttunni á Englandi.
Liverpool mætir Chelsea í enska deildabikarnum á morgun áður en liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Liverpool mætir Chelsea í enska deildabikarnum á morgun áður en liðin eigast við í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
„Ég veit að fólk er alltaf að tala um það, ég veit ekki alveg af hverju, að það sé pottþétt að við eða Man City verðum meistarar í lok tímabils. Fólk steingleymir Chelsea," sagði Klopp í dag.
„Liðið þeirra er reynslumikið, þeir hafa unnið titla áður og 80% af hópnum hefur tvisvar orðið meistari og veit hvernig þetta virkar.
Þetta er mjög góður hópur og mjög gott fótboltalið."
Klopp staðfesti einnig á fréttamannafundi í dag að Simon Mignolet verði í markinu í leiknum annað kvöld en Alisson fær frí.
Athugasemdir