Luciano Spalletti, þjálfari Inter, verður ekki með liðinu gegn Fiorentina í kvöld.
Spalletti var dæmdur í eins leiks bann eftir 0-1 sigur Inter gegn Sampdoria en eina sem hann gerði af sér var að fagna sigurmarkinu sem kom á 94. mínútu.
Dómari leiksins skrifaði í leikskýrsluna að Spalletti hafi sýnt ósæmilega hegðun gagnvart fjórða dómara, en myndbandið hér fyrir neðan sýnir að þjálfarinn virtist ekki vera að spá í neinu nema að fagna í myndavélina sem var bakvið sig.
Spalletti var rekinn upp í stúku þegar atvikið átti sér stað og hefur Nicola Rizzoli, yfirmaður dómaramála í ítalska boltanum, viðurkennt að brottreksturinn var harður dómur.
Inter mætir Fiorentina í kvöld í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3.
#Inter boss Luciano Spalletti is given a touchline ban vs #Fiorentina tomorrow for an excessive goal celebration https://t.co/cM3BGkDokQ #FCIM #InterFiorentina #SerieA pic.twitter.com/3I34B8VAOn
— footballitalia (@footballitalia) September 24, 2018
Athugasemdir