Sjötta umferð La Liga fer af stað í dag með þremur leikjum þar sem stórlið Atlético Madrid á meðal annars heimaleik gegn nýliðum Huesca.
Atlético Madrid hefur byrjað tímabilið brösulega en vann síðasta leik gegn Getafe á útivelli og á nú tækifæri á því að sigra sinn annan leik í röð þegar liðið fær nýliða Huesca í heimsókn.
Espanyol spilar gegn Eibar á heimavelli klukkan 18:00 og sá leikur er sýndur í beinni á Stöð 2 Sport 4. Auk þess spilar Real Sociedad sem hefur byrjað tímabilið ágætlega gegn Rayo Vallecano sem er neðarlega í töflunni en á leik til góða á önnur lið.
þriðjudagur 25. september
18:00 Espanyol - Eibar Stöð 2 Sport 4)
19:00 Real Sociedad - Rayo Vallecano
20:00 Atlético Madrid - Huesca Stöð 2 Sport4)
Athugasemdir