Íslendingaliðin Werder Bremen og Augsburg eiga bæði leiki í dag en síðarnefnda liðið á stórleik gegn Bayern Munchen.
Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg mæta á Allianz Arena en Alfreð hefur verið fjarri góðu gamni undanfarið og verður líklega ekki með í dag.
Þá eiga Aron Jóhannson og strákarnir í Werder Bremen heimaleik gegn Hertha Berlin. Aron hefur líkt og Alfreð verið meiddur í upphafi tímabils og verður líklega ekki með í dag heldur.
Þá eigast Hannover og Hoffenheim við auk þess sem Freiburg fær Schalke í heimsókn.
þriðjudagur 25. september
16:30 Werder Bremen - Hertha Berlin
18:30 Bayern - Augsburg
18:30 Hannover - Hoffenheim
18:30 Freiburg - Schalke
Athugasemdir