Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. september 2018 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Varane vill vinna Meistaradeildina aftur
Mynd: Getty Images
Franski miðvörðurinn Raphael Varane var mjög vinsæll í kosningunni um Gullknöttinn og var valinn í lið ársins.

Varane segir það mikinn heiður að vera partur af verðlaunaafhendingunni en hann hafi aldrei búist við þessu.

„Síðasta tímabil var frábært og ég er himinlifandi með að vera partur af verðlaunaafhendingunni, ég bjóst alls ekki við því. Ég er hérna þökk sé tveimur stórkostlegum liðum, Real Madrid og franska landsliðinu." sagði Varane, sem stefnir á fjórða Meistaradeildartitilinn í röð með Real.

„Enginn trúði að við gætum unnið Meistaradeildina þriðja árið í röð. Af hverju ættum við ekki að geta unnið fjórum sinnum?"
Athugasemdir
banner
banner