Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. október 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Alphonso Davies skaddaði liðband - Missir af þrettán leikjum
Mynd: Getty Images
Kanadíski bakvörðurinn Alphonso Davies er með skaddað liðband og verður frá keppni í sex til átta vikur.

Hansi Flick, þjálfari FC Bayern, staðfesti þetta eftir auðveldan 5-0 sigur gegn Eintracht Frankfurt í dag.

Davies þurfti að fara af velli eftir aðeins þrjár mínútur og tók Lucas Hernandez stöðu hans í varnarlínunni.

Davies kemur því ekki til baka fyrr en í kringum jólin og missir af restinni af riðlakeppni Meistaradeildarinnar, auk mikilvægra leikja gegn Borussia Dortmund og RB Leipzig.
Athugasemdir
banner
banner
banner