Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 25. október 2020 16:09
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Insigne bræðurnir skoruðu gegn hvorum öðrum
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Bræðurnir Lorenzo og Roberto Insigne mættust er nýliðar Benevento tóku á móti Napoli í áhugaverðum leik.

Þar mættust einnig Filippo Inzaghi og Gennaro Gattuso sem eru við stjórnvöl félaganna en þeir voru liðsfélagar í AC Milan og ítalska landsliðinu fyrir rúmum áratugi síðan.

Roberto Insigne skoraði fyrsta mark leiksins og kom Benevento óvænt yfir og héldu heimamenn forystunni þar til Matteo Politano var skipt inn af bekknum í síðari hálfleik.

Politano tók hornspyrnu skömmu eftir innkomuna, gaf stutta sendingu á Lorenzo Insigne sem skoraði glæsilegt mark með vinstrifótar skoti utan teigs sem fór í slánna og inn. Sjö mínútum síðar sendi Politano boltann út í vítateiginn þar sem Andrea Petagna var mættur til að skora.

Napoli verðskuldaði sigurinn en heimamenn í Benevento sýndu flottar rispur og voru ekki alltof langt frá því að sækja í stig.

Napoli er búið að vinna alla leiki sína á tímabilinu að undanskildri viðureign gegn Juventus. Napoli mætti ekki til leiks vegna Covid, liðinu var dæmt 3-0 tap og eitt mínusstig. Lærisveinar Gattuso eru því í öðru sæti sem stendur, með ellefu stig eftir fimm umferðir.

Benevento 1 - 2 Napoli
1-0 Roberto Insigne ('30)
1-1 Lorenzo Insigne ('60)
1-2 Andrea Petagna ('67)

Cagliari skoraði þá fjögur í fjörugum leik gegn nýliðum Crotone. Staðan var 3-2 eftir skemmtilegan fyrri hálfleik og fékk Luca Cigarini, miðjumaður Crotone, sitt annað gula spjald í upphafi síðari hálfleiks.

Tíu leikmenn Crotone náðu ekki að gera mikið og enduðu á að tapa. Giovanni Simeone, sonur Diego, skoraði í leiknum og er kominn með fjögur mörk eftir fimm umferðir.

Cagliari er með sjö stig á meðan Crotone er á botninum með eitt stig.

Að lokum gerði Parma 2-2 jafntefli við nýliða Spezia eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.

Juraj Kucka gerði jöfnunarmark Parma úr vítaspyrnu á 92. mínútu.

Cagliari 4 - 2 Crotone
0-1 Junior Messias ('21)
1-1 Charalampos Lykogiannis ('25)
2-1 Giovanni Simeone ('35)
2-2 Salvatore Molina ('43)
3-2 Riccardo Sottil ('45)
4-2 Joao Pedro ('84)
Rautt spjald: Luca Cigarini, Crotone ('48)

Parma 2 - 2 Spezia
0-1 Julian Chabot ('28)
0-2 Kevin Agudelo ('31)
1-2 Riccardo Gagliolo ('34)
2-2 Juraj Kucka ('92, víti)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 32 26 5 1 77 17 +60 83
2 Milan 32 21 6 5 63 37 +26 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 32 16 11 5 45 25 +20 59
5 Roma 31 16 7 8 56 35 +21 55
6 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
7 Atalanta 31 15 6 10 57 36 +21 51
8 Napoli 32 13 10 9 50 40 +10 49
9 Torino 32 11 12 9 31 29 +2 45
10 Fiorentina 31 12 8 11 43 36 +7 44
11 Monza 32 11 10 11 34 41 -7 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
14 Lecce 32 7 11 14 27 48 -21 32
15 Verona 32 6 10 16 30 44 -14 28
16 Udinese 31 4 16 11 30 47 -17 28
17 Empoli 32 7 7 18 25 48 -23 28
18 Frosinone 32 6 9 17 40 63 -23 27
19 Sassuolo 32 6 8 18 39 62 -23 26
20 Salernitana 32 2 9 21 26 68 -42 15
Athugasemdir
banner
banner
banner