Flamengo varð Brasilíumeistari án þess að sparka í bolta. Sigurmark Gremio gegn Palmeiras á 94. mínútu gerði það að verkum að ekki verður hægt að vinna upp þrettán stiga forystu Flamengo þegar fjórar umferðir eru eftir.
Þessi Brasilíumeistaratitill kemur aðeins sólarhring eftir að Flamengo vann River Plate í úrslitaleik Copa Libertadores, meistaradeild Suður-Ameríku.
Þessi Brasilíumeistaratitill kemur aðeins sólarhring eftir að Flamengo vann River Plate í úrslitaleik Copa Libertadores, meistaradeild Suður-Ameríku.
Það var haldin vegleg sigurhátíð á götum úti þegar Flamengo mætti heim eftir Copa Libertadores sigurinn.
Slagsmál brutust út í lok hátíðarhaldanna en steinum og flöskum var kastað í lögregluna sem svaraði með því að nota táragas.
Athugasemdir