Charlie Austin, markahæsti leikmaður Southampton á tímabilinu, hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann af enska knattspyrnusambandinu.
Austin fór með fót í andlitið á Jonas Lössl, markverði Huddersfield, í leik liðanna á Þorláksmessu. Dómarar leiksins sáu ekki atvikið og var hann dæmdur í leikbann af nefnd sem skoðaði upptökuna.
Austin fór með fót í andlitið á Jonas Lössl, markverði Huddersfield, í leik liðanna á Þorláksmessu. Dómarar leiksins sáu ekki atvikið og var hann dæmdur í leikbann af nefnd sem skoðaði upptökuna.
Austin ákvað að áfrýja ekki banninu í gær, en hann var tekinn af velli á 79. mínútu vegna meiðsla og verður frá í nokkrar vikur.
Austin mun því taka út leikbannið meðan hann er í meiðslum og sleppur þannig við refsingu.
Athugasemdir