Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 25. desember 2017 07:00
Ingólfur Stefánsson
Pulis gæti tekið við Middlesbrough
Mynd: Getty Images
Middlesbrough eiga í viðræðum við Tony Pulis um að taka við þjálfarastarfi liðsins samkvæmt heimildum SkySports.

Gary Monk var rekinn frá liðinu í kjölfarið á 2-1 sigri liðsins á Sheffield Wednesday á laugardag.

Pulis hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá West Brom í nóvember og er nú talinn líklegastur til að taka við starfinu hjá Middlesbrough.

Steve Gibson, eigandi Middlesbrough er talinn vilja klára ráðningarferlið fljótlega þar sem stíf leikjadagskrá sé framundan hjá liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner