Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. desember 2017 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Celtic samþykkti tilboð frá Brighton í Dembele
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að skoska toppliðið Celtic hefur samþykkt 18 milljón punda boð frá Brighton í Moussa Dembele.

Dembele er skærasta stjarna Celtic og hefur gert 40 mörk í 67 leikjum fyrir félagið.

Dembele er aðeins 21 árs gamall og kom til Celtic frá Fulham fyrir einu og hálfu ári síðan.

Óljóst er hvort Dembele gangi til liðs við Brighton í janúar eða í sumar, en fréttamenn eru sammála um að kaupverðið sé 18 milljónir punda auk bónusa.

Brighton eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og hafa verið í vandræðum með að skora mörk. Glenn Murray og Tomer Hemed eru í baráttu um stöðu fremsta manns sem stendur.
Athugasemdir
banner
banner