Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. desember 2020 15:03
Brynjar Ingi Erluson
Bild: Özil líklega á leið til Fenerbahce - Lækkar verulega í launum
Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Fenerbahce er í viðræðum við Mesut Özil, leikmann Arsenal, en það er þýski miðillinn Bild sem greinir frá þessu í dag.

Özil hefur ekkert spilað með Arsenal á þessari leiktíð en Mikel Arteta ákvað að velja hann ekki í Evrópu- og úrvalsdeildarhópinn fyrir tímabilið.

Hann hefur verið einn besti leikmaður félagsins frá því hann kom en er ekki í náðinni hjá Arteta og þar að auki verður hann samningslaus næsta sumar.

Özil þénar 350 þúsund pund á viku en er nú þegar farinn að huga að félagaskiptum.

Samkvæmt Bild er hann í viðræðum við tyrkneska félagið Fenerbahce og er félagið tilbúið að bjóða honum 150 þúsund pund í vikulaun.

Það verður þó að segjast ólíklegt að Özil yfirgefi Arsenal í janúar en hann myndi væntanlega ganga til liðs við Fenerbahce næsta sumar ef allt gengur að óskum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner