Danny Rose, bakvörður Tottenham, var handtekinn á Þorláksmessu þar sem hann keyrði glannalega.
Rose var handtekinn og færður á lögreglustöð í Northamptonshire stuttu eftir klukkan fjögur að morgni á Þorláksmessu.
Búið er að sleppa Rose úr haldi og er málið til rannsóknar.
Rose er í kuldanum hjá Tottenham og hefur hann ekkert fengið að spila á þessu tímabili.
Hann var í láni hjá Newcastle á seinni hluta síðasta tímabils, en fyrir þetta tímabil fékk hann ekki einu sinni treyjunúmer hjá Tottenham. Hann er hvorki í úrvalsdeildarhóp né Evrópudeildarhóp Spurs.
Athugasemdir