Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 25. desember 2020 21:30
Victor Pálsson
Götze ræddi óvænt við Bayern um endurkomu
Mynd: Getty Images
Mario Götze, leikmaður PSV Eindhoven, ræddi óvænt við Bayern Munchen í sumar um að snúa aftur til félagsins.

Götze var fáanlegur á frjálsri sölu en samningi hans hjá Borussia Dortmund var rift og hélt hann því til Hollands.

Götze lék með Bayern frá 2013 til 2016 áður en hann samdi aftur við Dortmund þar sem ferillinn hófst.

„Við héldum opnar viðræður í sumar varðandi mína framtíð og plön Bayern," sagði Götze við Bild.

„Þeir sögðust hafa mætur á mér sem leikmanni og sem manneskju og að þeir hefðu getað fengið mig aftur til Bayern."

„Það er mikið að gera hjá Hansi Flick hjá Bayern eins og hjá mér hjá PSV. Hann er frábær stjóri og að taka við liðinu á miðju tímabili og vinna svo þrennuna er aðdáunarvert."
Athugasemdir
banner
banner
banner