Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 25. desember 2020 11:23
Brynjar Ingi Erluson
Jesus og Walker ekki með á morgun - Smituðust af veirunni
Gabriel Jesus og Kyle Walker verða fjarri góðu gamni á morgun
Gabriel Jesus og Kyle Walker verða fjarri góðu gamni á morgun
Mynd: Getty Images
Manchester City verður án Gabriel Jesus og Kyle Walker er liðið mætir Newcastle United á morgun en þeir greindust með kórónaveiruna í dag.

Jesus og Walker smituðust ásamt tveimur þjálfurum úr þjálfaraliðinu en þeir einangra sig núna frá hópnum.

Leikmennirnir fóru í skimun fyrir veirunni og greindist prófið jákvætt og verða þeir því ekki með gegn Newcastle á morgun og gætu þá misst af mikilvægum leik gegn Everton eftir þrjá daga.

Jesus hefur spilað 11 leiki og skorað 4 mörk fyrir City á þessari leiktíð á meðan Walker hefur spilað 19 leiki og skorað einu sinni.

City hefur byrjað tímabilið afar illa og er í 8. sæti með 23 stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner