Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. desember 2020 18:57
Victor Pálsson
Jón Dagur í liði vikunnar
Mynd: Getty Images
Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður AGF Aarhus, var valinn í lið vikunnar í Danmörku eftir frábæra frammistöðu í síðasta leik.

Jón Dagur hefur spilað með prýði fyrir AGF á tímabilinu en liðið er að berjast á toppnum eftir fyrstu 13 umferðirnar.

AGF vann 3-0 heimasigur á Álaborg í síðustu umferð og skoraði okkar maður tvö í þeirri viðureign.

Liðið situr í þriðja sæti deildarinnar með 24 stig og er aðeins þremur stigum á eftir toppliði Midtjylland.

Umboðsmaðurinn Magnús Arnar Magnússon vakti athygli á þessu á Twitter en allr komast fjórir leikmenn AGF í liðið.

Jón Dagur er á vinstri vængnum í liði vikunnar og má segja að það sé vel verðskuldað hjá landsliðsmanninum.



Athugasemdir
banner
banner
banner