Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 25. desember 2020 12:45
Brynjar Ingi Erluson
Maxim Tsigalko fallinn frá - Goðsögn í Championship Manager
Maksim Tsyhalka er látinn
Maksim Tsyhalka er látinn
Mynd: Getty Images
Maxim Tsigalko, fyrrum framherji Dinamo Minsk í Hvíta-Rússlandi, er látinn aðeins 37 ára að aldri en félagið tilkynnti þetta í dag. Hann er hvað mest þekktur í samfélagi tölvuleiksins Championship Manager 2001-2002.

Raunverulegt nafn hans er Maksim Tsyhalka en var þýtt yfir í Maxim Tsigalko í leiknum. Hæfileikar hans þar voru ótrúlegir og oftar en ekki besti leikmaðurinn sem hægt var að kaupa fyrir lítið fé.

Hann var einhverskonar „költ"-hetja í samfélagi Championship Manager en hann var betri en margir af bestu framherjum heims á þessum tíma í leiknum.

Tsyhalka spilaði lengst af með Dinamo Minsk í heimalandinu og vann þar bæði deild- og bikar. Hann lék tvo landsleiki fyrir Hvíta-Rússland og skoraði eitt mark.

Hann spilaði þar með tvíburabróður sínum, Yuri, sem var markvörður liðsins en Maksim lagði skóna á hilluna árið 2008 en lífið reyndist honum erfitt eftir ferilinn og glímdi hann við alvarleg heilsufarsvandamál.

Maksim fannst látinn í dag en ekki er vitað hvernig hann lést.

„Það lét mig enginn af vita af þessum leik því það þekkti enginn leikinn í Hvíta-Rússlandi á þessum tíma. Ég heyrði fyrst af hæfileikum mínum í leiknum frá rússneskum blaðamanni og ég kom af fjöllum. Hann sagði mér að ég væri vinsælasti leikmaðurinn í leiknum og ég trúði ekki mínum eigin augum," sagði Tsyhalka.

„Ég vissi ekki af tilveru leiksins og hló. Ég áttaði mig seinna á því að ég hefði getað grætt pening á þessu en það var of seint því miður."


Athugasemdir
banner
banner
banner