Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. desember 2020 22:50
Victor Pálsson
Moyes sagði nei við Welbeck - Hafði áhyggjur
Mynd: Getty Images
David Moyes hafnaði því að fá Danny Welbeck á frjálsri sölu í vetur áður en framherjinn samdi við Brighton.

Moyes greinir sjálfur frá þessu en samningur Welbeck við Watford rann út í október.

Moyes vann með Welbeck hjá Manchester United á sínum tíma en meiðsli hafa sett stórt strik í reikning leikmannsins sem er þrítugur í dag.

„Danny var einhver sem ég íhugaði að fá en ég hafði kannski áhyggjur af meiðslasögu hans frekar en einhverju öðru," sagði Moyes.

„Ég er ánægður fyrir hans hönd því ég naut þess að vinna með honum hjá Man Utd. Hann er frábær strákur og mjög viljugur."

„Hann er góður fótboltamaður sem hefur lagt sig mikið fram og hefur staðið sig vel með Brighton."
Athugasemdir
banner
banner