Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. desember 2020 20:15
Victor Pálsson
Myndband: Tilþrif ársins í ensku úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images
Það styttist nú í að árið 2020 kveðji okkur en enska úrvalsdeildin mun að sjálfsögðu fara af stað á næsta ári líkt og aðrar deildir.

Það vantar þó ekki upp á leikina á næstu dögum en spilað er á hverjum degi á Englandi þar til 31. desember.

Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig taflan lítur út eftir árið en þegar þetta er skrifað situr Liverpool á toppi deildarinnar með fjögurra stiga forskot.

Úrvalsdeildin á Twitter birti skemmtilegt myndband í kvöld þar sem má sjá bestu tilþrif ársins í úrvalsdeildinni.

Þar koma bæði fyrir skemmtilegt tilþrif og mörk og vonandi verður meira á boðstólnum næstu dagana.

Hér má sjá myndbandið umtalaða.



Athugasemdir
banner
banner