Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 25. desember 2020 16:12
Brynjar Ingi Erluson
Rodrygo frá í þrjá mánuði
Rodrygo verður ekkert með Real Madrid næstu þrjá mánuði
Rodrygo verður ekkert með Real Madrid næstu þrjá mánuði
Mynd: Getty Images
Brasilíski táningurinn Rodrygo spilar ekkert með Real Madrid næstu þrjá mánuði en hann meiddist í 2-0 sigri liðsins á Granada á miðvikudag.

Þessi 19 ára gamli sóknarmaður hefur spilað 17 leiki, skorað 1 og lagt upp 6 fyrir liðið á þessari leiktíð en hann kom til félagsins frá Santos á síðasta ári.

Hann hafði byrjað síðustu tvo leiki fyrir Madrídinga en fór af velli á 38. mínútu gegn Granada eftir að hann meiddist aftan í læri.

Spænska félagið hefur nú staðfest að Rodrygo verður frá næstu þrjá mánuði.

Svekkjandi fyrir Rodrygo sem var búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti eftir að hafa þolað mikla bekkjarsetu á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner