Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. mars 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Kári með stórkostlegt mark í háskólaboltanum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Pétursson mun leika með HK í Pepsi Max-deildinni í sumar. Hann gerði tveggja ára samning við Kópavogsfélagið í janúar síðastliðnum.

Kári er uppalinn í Stjörnunni. Hann var í láni hjá HK í fyrra og hjálpaði liðinu að komast upp úr Inkasso-deildinni.

Kári er þessa stundina að spila í háskólaboltanum í Bandaríkjunum þar sem hann leikur með Boston háskólanum.

Hann skoraði stórkostlegt mark á dögunum, en hann deildi því á Twitter. Við mynband af markinu skrifaði hann:

„Bæng, létt upphitun fyrir Kórinn í sumar."

Myndband af þessu flotta marki má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner